UM OKKUR
BAÐA er íslenskt vörumerki stofnað af tveimur vinkonum með sameiginlega sýn: að koma með fallegar, tímalausar og vandaðar vörur á markað sem fólk elskar að nota.
Við byrjuðum á sundfötum þar sem að sund og böð er stór partur af íslenskri menningu. Frá sundlaugum hverfanna til náttúrulauga um allt land hefur það lengi verið hluti af daglegu lífi Íslendinga að fara í böð, slaka á og njóta. Nafnið BAÐA er innblásið af þessari hefð og tengingu við vatnið.
Þegar við vorum að leitast eftir sundfötum fannst okkur vanta á markaðinn valkosti sem sameina góða endingu, fallegt útlit og einfaldan, minimalískan stíl. Við vildum koma með sundföt á markaðinn sem þola reglulega notkun í íslenskum sundlaugum og klórnum sem þeim fylgir, án þess að fórna útliti eða þægindum.
Markmið okkar er að bjóða sundföt sem fólki líður vel í og finnst fallegt að klæðast. Við leggjum áherslu á vönduð efni, klassísk snið og hönnun sem endist lengur en eitt tímabil.
Þó sundföt séu fyrsta skrefið okkar er BAÐA hugsað sem meira en sundfatamerki. Framtíðarsýn okkar er að byggja upp vörumerki sem mun með tímanum bjóða upp á fleiri vörur sem endurspegla sömu gildi – gæði, einfaldleiki og tímalaus stíll.
Takk fyrir að vera hluti af ferðalaginu okkar!
