Skilmálar

Upplýsingar:
Baða Swim ehf
Kt: 450226-0330
Reykjavík, Ísland
Netfang: badaswim@badaswim.is

Afhending
Afgreiðslutími pantana er 1-2 virkir dagar. 

Afhendingartími getur verið breytilegur eftir álagi hjá flutningsaðila og ber Baða Swim ehf. ekki ábyrgð á töfum sem rekja má til flutningsaðila. Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang og velja réttan afhendingarmáta við pöntun.

Greiðslumöguleikar
Hægt er að greiða með öllum helstu debet- og kreditkortum í vefverslun okkar.
Öll verð á síðunni eru birt með virðisaukaskatti (VSK) inniföldum. Sendingarkostnaður bætist við verð vörunnar og er reiknaður áður en greiðsluferli er lokið.

Við áskiljum okkur rétt til verðbreytinga, innsláttarvillna og þess að hætta sölu vara án fyrirvara.

Skil eða skipti á vöru
Við bjóðum upp á 14 daga skilafrest frá því að vara er móttekin. Til að hægt sé að samþykkja skil eða skipti þarf varan að vera í upprunalegu ástandi, ónotuð og með öllum upprunalegum merkimiðum og umbúðum. Einnig þurfa vörurnar að vera með órofnum hreinlætismiða til að skil eða skipti séu samþykkt.

Vegna eðlis sundfata áskilur Baða Swim ehf. sér rétt til að hafna skilum á vörum þar sem hreinlætismiði hefur verið fjarlægður eða vara hefur verið notuð.

Ef óskað er eftir að skila eða skipta vöru skal hafa samband við okkur innan 14 daga frá móttöku pöntunar á badaswim@badaswim.is með upplýsingum um pöntunarnúmer og ástæðu skila eða skipta. 
Þegar skil hafa verið samþykkt fær kaupandi upplýsingar um hvert senda eigi vöruna. Athugið að sendingarkostnaður vegna skila er á ábyrgð kaupanda nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða.

Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaup þegar varan hefur verið móttekin og yfirfarin.

Ábyrgð og gallaðar vörur
Ef vara reynist gölluð, skemmd eða röng við afhendingu er viðskipavinum bent á að hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er eftir að vara hefur verið móttekin.

Kvartanir skulu sendar á badaswim@badaswim.is ásamt nafni, pöntunarnúmeri og lýsingu á vandamálinu.
Sé kvörtun talin réttmæt verður boðið upp á skipti, endurgreiðslu eða aðra lausn í samræmi við rétt neytenda samkvæmt íslenskum lögum.

Eignarréttarfyrirvari
Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu.

Óheimilt er að afrita, dreifa eða nota efni af vefsíðu okkar, þar á meðal texta, myndir, merki og annað efni, án skriflegs leyfis frá Baða Swim ehf.

Lagaákvæði
Um skilmála þessa gilda lög um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og lög um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við á.

Shopping Cart
0
    0
    Karfan þín
    Karfan þín er tóm...Allar vörur
    Scroll to Top